Leikskólar sem læra með börnum

  • Skip to content
  • Jump to main navigation and login

Nav view search

Navigation

Search

  • Forsíða
  • Innskráning

Um Bugðu

  • Lokaskýrsla
  • Umhverfismennt
  • Samvinna
  • Virðing
  • Lýðheilsa
  • Gleði
  • Print
  • Email

Bugða er samstarfsverkefni fjögurra leikskóla í Reykjavík með sameiginleg markmið í uppeldisstarfi og starfsmannastefnu. Þetta eru leikskólarnir Brákarborg, Garðaborg, Klambrar og Rauðhóll. Formlegt samstarf skólanna hófst 19. október 2007 með sameiginlegum fræðsludegi. Faglegt samstarf skólanna byggir á því að leikskólinn er lærdómssamfélag þar sem börn og fullorðnir geta lært og þroskast saman.

Bugðu-leikskólarnir sækja uppeldiskenningar sínar til bandaríska heimspekingsins og menntafrömuðarins John Dewey um lýðræði í leikskólastarfi, menntun sem byggir á reynslu og mikilvægi þess að þroska skapandi og gagnrýna hugsun. Starfsaðferðir byggja á kenningum bandaríska uppeldisfræðingsins Caroline Pratt sem vildi að skólinn aðlagaði sig að nemendum en ekki nemendur að skólanum. Einingakubbarnir, sem eru eitt helsta náms- og kennsluefni Bugðu-leikskólanna, eru niðurstaða tilrauna Pratt til þess að finna “eitthvað svo sveigjanlegt, að börnin gætu notað það án leiðbeiningar og stjórnunar.”

 

Powered by Joomla!®